back

Fornar rætur Árbæjar liggja enn dýpra en áður var talið

26.07.2016 X

Um nýjar fornleifarannsóknir í Árbæ

Í sumar hefur farið fram fornleifarannsókn í Árbæjarsafni og voru fimm könnunarskurðir grafnir á gamla bæjarstæði Árbæjar. Sú rannsókn leiddi í ljós mannvirki sem voru byggð fyrir árið 1226, en það má sjá á gjóskulögum í jörðu. Jafnframt kom í ljós torfhleðsla sem inniheldur svokallað landnámslag. Það gefur vísbendingu um enn eldri mannvist, jafnvel frá landnámstíð.

Þessar fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar eru afar merkilegar og bæta við þekkingu um sögu Reykjavíkur. Elstu rituðu heimildir um búsetu í Árbæ eru frá miðri 15. öld, en nú má segja að nokkrar aldir bætist við þá sögu, sem sýna að fornar rætur Árbæjar liggja enn dýpra en áður var þekkt. Á komandi misserum verður  áframhald á þessari fornleifarannsókn og markmiðið er að gefa gestum Árbæjarsafns tækifæri til þess að fylgjast með framvindu mála og að auka þekkingu okkar og skilning á sögu Reykjavíkur og fólksins sem þar bjó.

Frekari upplýsingar veita:
Anna Lísa Guðmundsdóttir, verkefnastjóri fornleifa s: 411-6315

Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri s: 693-6996

 

Upplýsingar

Upplýsingar

Borgarsögusafn

Grandagarði 8

101 Reykjavík

Sími: (+354) 411 6300

Hafðu samband

Skrifstofan er opin:

Opnunartímar

Skrifstofa Borgarsögusafnsins er opin 09:00 - 16:00

Aðgangseyrir

Aðgangseyrir

1.000 -1.740 kr. sjá nánar á síðu hvers sýningarstaðar fyrir sig.

Börn 0-17 ára og öryrkjar

Ókeypis aðgangur

Nemendur með gild skólaskírteini

700-1.120 kr.

Menningarkort, árskort á borgarsöfnin

6.500 kr.

Menningarkort fyrir 67+, árskort á borgarsöfnin

1.800 kr.

ICOM og Físos korthafar

Ókeypis

Skráðu þig á póstlista Borgarsögusafns

Þú færð fréttabréf um opnanir og viðburði ofl.