back

Heimsókn til systurborgarinnar Hull í Bretlandi.

07.09.2017 X

Dagana 31. ágúst – 3. september hélt hópur frá Íslandi til Kingston upon Hull, sem er einmitt systurborg Reykjavíkur. Þessi hópur taldi hátt í 40 manns og voru flestir félagar í Öldungaráði Landhelgisgæslunnar og Hollvinasamtökum Óðins.

Heimsókn til Hull, systurborgar Reykjavíkur 31. ágúst - 3. sept 2017.
Heimsókn til systurborgarinnar Hull, 31. ágúst - 3. sept 2017.

Dagana 31. ágúst – 3. september hélt hópur frá Íslandi til Kingston upon Hull, sem er einmitt systurborg Reykjavíkur. Þessi hópur taldi hátt í 40 manns og voru flestir félagar í Öldungaráði Landhelgisgæslunnar og Hollvinasamtökum Óðins. Reykjavíkurborg átti fulltrúa í þessum hópi, sem voru forseti borgarstjórnar og formaður menningar- og ferðamálaráðs, auk nokkurra starfsmanna Borgarsögusafns Reykjavíkur. Ferðin er hluti af samstarfsverkefnum Sjóminjasafnsins í Reykjavík (sem er hluti af Borgarsögusafni) og Hull Maritime Museum og var með henni endurgoldin heimsókn enskra fyrr á árinu. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá í Hull og gafst m.a. fyrrum gæslumönnum færi á að hitta enska sjómenn af Íslandsmiðum frá tímum þorskastríðanna. Hvarvetna var Íslendingunum tekið með kostum og kynjum og óhætt er að segja að andi vináttu hafi svifið yfir vötnum. Íslendingarnir gáfu safninu í Hull m.a. merkan grip, sem eru togklippur úr þorskastríðunum.

Togklippur sem gefnar voru til Hull 1. september 2017.
Togklippur sem gefnar voru til Hull 1. sept 2017.

Upplýsingar

Upplýsingar

Borgarsögusafn

Grandagarði 8

101 Reykjavík

Sími: (+354) 411 6300

Hafðu samband

Skrifstofan er opin:

Opnunartímar

Skrifstofa Borgarsögusafnsins er opin 09:00 - 16:00

Aðgangseyrir

Aðgangseyrir

1.000 -1.740 kr. sjá nánar á síðu hvers sýningarstaðar fyrir sig.

Börn 0-17 ára og öryrkjar

Ókeypis aðgangur

Nemendur með gild skólaskírteini

700-1.120 kr.

Menningarkort, árskort á borgarsöfnin

6.500 kr.

Menningarkort fyrir 67+, árskort á borgarsöfnin

1.800 kr.

ICOM og Físos korthafar

Ókeypis

Skráðu þig á póstlista borgarsögusafns

Við sendum þér upplýsingar um viðburði, tilboð og fleira.