back
Jóladagskrá Árbæjarsafns
sunnudagana 9. og 16. des 2018 13:00-17:00
/*php $markup = $content['field_mynd_stor'][0]['#markup']; $markup = str_replace('typeof="foaf:Image"', 'typeof="foaf:Image" class="lightbox"', $markup); $content['field_mynd_stor'][0]['#markup'] = $markup; */?>

Bráðum koma blessuð jólin
Jóladagskrá Árbæjarsafns
Sunnudagana 9. og 16. des 13:00-17:00
Bráðum koma blessuð jólin er yfirskrift jóladagskrár Árbæjarsafns sem boðið verður upp á sunnudagana 9. og 16. des n.k. Jóladagskráin er ómissandi hluti aðventunnar í borginni enda leitun að stað sem er eins notalegt og skemmtilegt að heimsækja á þessum tíma árs.
Dagskráin er á öllu safnsvæðinu og geta ungir sem aldnir rölt á milli húsanna og fylgst með undirbúningi jólanna eins og hann var hér áður fyrr. Hrekkjóttir jólasveinar gægjast á glugga og kíkja í potta. Börn og fullorðnir dansa í kringum jólatréð á torginu og syngja vinsæl jólalög.
Húsin á Árbæjarsafni bera upprunaleg og skemmtileg nöfn. Í Árbænum sitja fullorðnir og börn með vasahnífa og skera út laufabrauð en uppi á baðstofulofti er spunnið og prjónað. Í Kornhúsinu búa börn og fullorðnir til músastiga, jólapoka og sitthvað fleira. Í Hábæ er hangikjöt í potti sem gestir fá að bragða á. Í Nýlendu má fylgjast með tréútskurði og í Miðhúsum er hægt að fá prentaða jólakveðju. Í Efstabæ er jólaundirbúningurinn kominn á fullt skrið og skatan komin í pottinn. Í hesthúsinu frá Garðastræti eru búin til tólgarkerti og kóngakerti eins og í gamla daga. Jólahald heldra fólks við upphaf 20. aldar er sýnt í Suðurgötu 7 og í Krambúðinni er kramarhús, konfekt og ýmis jólavarningur til sölu.
Fastir liðir:
14:00 Guðsþjónusta í safnkirkjunni.
15:00 Dansað í kringum jólatréð á torginu og sungin jólalög.
14:00-16:00 Jólasveinar skemmta gestum og taka þátt í söng og dansi í kringum jólatréð.
Að vanda býður Dillonshús upp á ljúffengar og hefðbundnar jólaveitingar.
Fullorðnir 18+ 1.650 kr.
Börn (17 ára og yngri), ellilífeyrisþegar (67+) og öryrkjar: Ókeypis aðgangur