back

Tendrun Friðarsúlunnar 9. október

05.10.2017 X

Friðarsúlan í Viðey verður tendruð í 11. sinn með friðsælli athöfn á fæðingardegi Johns Lennons mánudaginn 9. október klukkan 21:00 og verður kveikt á henni til 8. desember sem er dánardagur hans. Yoko Ono býður upp á fríar siglingar yfir sundið. Þá verða á fríar strætóferðir í kringum tendrunina.

Friðarsúlan í Viðey tendruð kl. 21 þann 9. október

Friðarsúlan í Viðey verður tendruð í 11. sinn með friðsælli athöfn á fæðingardegi Johns
Lennons mánudaginn 9. október klukkan 21.00 og verður kveikt á henni til 8. desember sem
er dánardagur hans. Yoko Ono býður upp á fríar siglingar yfir sundið. Þá verða á fríar  strætóferðir í kringum tendrunina.

Listasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur, Graduale Nobili, Sóley Stefánsdóttir, Svavar Knútur og Valur Freyr Einarsson halda úti dagskrá í Viðey sem hefst kl. 18:30 og stendur til kl. 22:30. Óskatré Yoko Ono verða staðsett í Viðeyjarnausti og Viðeyjarstofu þar sem gestir geta skilið eftir óskir sínar í tengslum við frið.

Yoko Ono segir um heimsókn sína til landsins í tengslum við tendrunina:
,,Ísland er afar andlegur staður, ég skynja svo mikla orku þegar ég heimsæki landið. Í hraða nútíma samfélags er svo auðvelt að gleyma ást, friði, skilningi og orkunni í náttúrunni. Á Íslandi, sérstaklega í Viðey er hins vegar auðveldara að muna eftir hvað þetta er mikilvægt fyrir okkur öll og jörðina okkar. John hefði elskað það.“

SIGLINGAR OG STRÆTÓ
Siglingar fyrir tendrun kl. 18:00-20:30: Yoko Ono býður upp á fríar siglingar yfir sundið. Siglt er frá Skarfabakka.
Siglingar eftir tendrun frá kl. 21:45: Siglt er þar til lokið er að flytja gesti frá eyjunni.  
Strætó fyrir tendrun kl. 17:45-20:10: Fríar strætóferðir eru frá Hlemmi að Skarfabakka á tuttugu mínútna fresti.
Strætó eftir tendrun kl. 22:00: Hægt verður taka strætó frá Skarfabakka að Hlemmi og þar til lokið verður að flytja gesti úr Viðey.

DAGSKRÁ Í VIÐEY
Kl. 18:30-19:30: Dagskráin hefst með leiðsögn á vegum Listasafns Reykjavíkur um verk
Richards Serra í Viðey. Kl. 19:00 hefst söguganga á vegum Borgarsögusafnsins um
byggð og sögu í eyjunni. Farið verður frá Viðeyjarstofu.
Kl. 19:30: Sóley Stefánsdóttir flytur tónlist í Viðeyjarnausti.
Kl. 20:40: Dagskráin við Friðarsúluna hefst með kórsöng Graduale Nobili undir stjórn Þorvaldar Arnar Davíðssonar. Yoko Ono flytur ávarp og borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson tekur svo við. Tendrað verður á Friðarsúlunni kl. 21.00. Kynnir kvöldsins er Valur Freyr Einarsson.
Kl. 21:30: Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur flytur tónlist í Viðeyjarnausti eftir athöfnina. Veitingasala verður í Viðeyjarnausti og Viðeyjarstofu.

FRIÐARSÚLAN
Friðarsúlan er útilistaverk eftir Yoko Ono sem var reist í Viðey árið 2007 til að heiðra
minningu Johns Lennons. Friðarsúlan er tendruð árlega á fæðingardegi hans þann 9.
október og lýsir til 8. desember sem er dánardagur hans. Listaverkið er tákn fyrir baráttu Ono
og Lennons fyrir heimsfriði. Friðarsúlan, er í formi óskabrunns en á hana eru grafin orðin
„að hugsa sér frið“ á 24 tungumálum en enska heitið er vísun í lagið „Imagine“ eftir John
Lennon.

Nánari upplýsingar veitir Berghildur Erla Bernharðsdóttir, kynningarstjóri Höfuðborgarstofu, sími: 411 6005 / 694 5149 berghildur@visitreykjavik.is.

Upplýsingar

Upplýsingar

Borgarsögusafn

Grandagarði 8

101 Reykjavík

Sími: (+354) 411 6300

Hafðu samband

Skrifstofan er opin:

Opnunartímar

Skrifstofa Borgarsögusafnsins er opin 09:00 - 16:00

Aðgangseyrir

Aðgangseyrir

1.000 -1.740 kr. sjá nánar á síðu hvers sýningarstaðar fyrir sig.

Börn 0-17 ára og öryrkjar

Ókeypis aðgangur

Nemendur með gild skólaskírteini

700-1.120 kr.

Menningarkort, árskort á borgarsöfnin

6.500 kr.

Menningarkort fyrir 67+, árskort á borgarsöfnin

1.800 kr.

ICOM og Físos korthafar

Ókeypis

Skráðu þig á póstlista borgarsögusafns

Við sendum þér upplýsingar um viðburði, tilboð og fleira.