back

VETRARFRÍSDAGSKRÁ BORGARSÖGUSAFNS 2017

17.10.2017 X

19.-23. október 2017 Borgarsögusafn verður með fjölbreytta dagskrá í vetrarfríi grunnskóla Reykjavíkur 19. -23. október og er aðgangur að henni að venju ókeypis fyrir börn og fullorðna í þeirra fylgd.

ÁRBÆJARSAFN

Mánudaginn 23. október milli kl. 13-16 verður boðið upp á fjölskylduvæna dagskrá í Árbæjarsafni. Ævar vísindamaður les upp úr bók sinni Þitt eigið ævintýri í húsi sem nefnist LÆKJARGATA. Lesturinn hefst kl. 13:00 og eru allir velkomnir.

Í fræðsluhúsinu LÍKN er ljósmyndastúdíó á 1. hæð þar sem fólk getur klætt sig upp í búninga frá fyrri tíð og fengið starfsfólk til að smella af sér polaroid mynd við flottan bakgrunn milli kl. 13-16. Á annarri hæð hússins er ljósmyndasýning nemenda úr MH.

Í kjallara safnhússins sem nefnt er Landakot er að finna opna geymslu safnsins og nefnist hún KOFFORTIÐ. Þar verður boðið upp á skemmtilega myndaþraut. Í Koffortinu leynast margir forvitnilegir safngripir sem börn hafa gaman af og foreldrar, afar og ömmur þekkja frá því í „gamla daga.“

Leikfangasýningin Komdu að leika!  í safnhúsinu LANDAKOTI hefur fengið yfirhalningu og er nú enn betri fyrir vikið. Þar mega börn leika sér með leikföng sem börn hafa notað síðustu 100 árin.

LANDNÁMSSÝNINGIN Í AÐALSTRÆTI

Landnámssýningin býður upp á vetrarfrísdagskrá dagana 19.-23. október frá kl. 10-18.  Þar verður hægt að púsla og leysa þrautir  í notalegu umhverfi sýningarinnar. Inn af sýningunni er kennslurými með leikföngum og víkingabúningum. Tilvalið tækifæri til að smella af flottri mynd! Þá mælum við með að fjölskyldur skoði sýninguna Dýrin – leyndardómur landnámssins en hún er sérstaklega hönnuð með börn í huga.

LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR

Dagana 19.-23. október munu börn og fullorðnir í þeirra fylgd fá ókeypis aðgang að Ljósmyndasafninu.  Þar stendur yfir sýningin „Mál 214“ eftir Jack Latham sem fjallar um Guðmundar- og Geirfinnsmálið, eitt stærsta og umdeildasta sakamál í sögu Íslands og sýningin „Hraun“ með ljósmyndum eftir Yogan Muller.

SJÓMINJASAFNIÐ Í REYKJAVÍK

Fimmtudag og föstudag 19. og 20. október kl. 11 verður farinn fjölskylduleiðangur um króka og kima varðskipsins Óðins. Takmarka verður fjölda gesta skipinu því þar eru þröng rými og ekki með öllu hættulaus. Því komast aðeins 15-20 manns í hverja leiðsögn. Gestum er bent á að bóka sig í leiðsögn í miðasölu safnsins.

Foreldrar með stálpuð börn geta farið í hefðbundna leiðsögn um borð í Óðni kl. 13, 14 og 15 en hún fer yfirleitt fram á ensku.

Helgina 21.-22. október milli kl. 13-16 býðst fjölskyldum að smíða skip úr tæknilegó eftir fyrirmyndum eða með frjálsri aðferð. Til aðstoðar verður sérlegur kubbasérfræðingur í tæknilegó.

Upplýsingar

Upplýsingar

Borgarsögusafn

Grandagarði 8

101 Reykjavík

Sími: (+354) 411 6300

Hafðu samband

Skrifstofan er opin:

Opnunartímar

Skrifstofa Borgarsögusafnsins er opin 09:00 - 16:00

Aðgangseyrir

Aðgangseyrir

1.000 -1.740 kr. sjá nánar á síðu hvers sýningarstaðar fyrir sig.

Börn 0-17 ára og öryrkjar

Ókeypis aðgangur

Nemendur með gild skólaskírteini

700-1.120 kr.

Menningarkort, árskort á borgarsöfnin

6.500 kr.

Menningarkort fyrir 67+, árskort á borgarsöfnin

1.800 kr.

ICOM og Físos korthafar

Ókeypis

Skráðu þig á póstlista Borgarsögusafns

Þú færð fréttabréf um opnanir og viðburði ofl.