back
Árbæjarsafn 65 ára | Kíkt á bak við tjöldin
Árbæjarsafn er 65 ára um þessar mundir og verður haldið upp á þau tímamót sunnudaginn 14. ágúst með skemmtilegri og fræðandi dagskrá á safninu. Öll eru hjartanlega velkomin og að sjálfsögðu verður ókeypis aðgangur.

Hinn 11. ágúst 1957 var fáni dreginn að húni við Árbæjarsafn í fyrsta sinn til marks um að gestir væru boðnir velkomnir í safnið. Árbær á sér langa og merka sögu en bærinn hefur löngum verið vinsæll áningarstaður. Óhætt er að segja að Árbæjarsafn skipar sérstakan sess í hugum íbúa borgarinnar og gesta hennar enda er safnið sannkölluð vin í borgarlandslaginu þar sem fólk á öllum aldri getur upplifað stemninguna í Reykjavík eins og hún var í gamla daga.
Í tilefni af afmælinu munu sérfræðingar safnsins vera til skrafs og ráðgerða og fræða gesti um allt það góða starf sem unnið er á safninu. Gestir geta kíkt inn í varðveisluhús safnsins og séð hvernig búið er um gripi fyrir komandi kynslóðir, kynnt sér vinnu er að snýr að minjavörslu og fornleifum í borgarlandinu og verndun eldri húsa. Þá verður einnig vakin athygli á fræðslustarfi safnsins og hvernig safnhúsin eru útbúin fyrir sýningar.
Á safninu má einnig finna landnámshænurnar og í haga eru hestar, kindur og lömb. í Dillonshúsi er heitt á könnunni og heimabakað góðgæti. Hillur Krambúðarinnar eru stútfullar af sælgæti og í safnbúðinni fæst gómsætur ís.
Dagskráin stendur frá kl. 13-16 en safnið er opið frá kl. 10-17.
Árbæjarsafn er hluti af Borgarsögusafni: Eitt safn á fimm frábærum stöðum.