back
Friðarsúluviðburði aflýst
Viðburði vegna tendrunar Friðarsúlunnar aflýst vegna veðurs.

Okkur þykir leitt að tilkynna að viðburði vegna tendrunar Friðarsúlunnar í Viðey, í dag mánudag 9. október, hefur verið aflýst vegna veðurs.
Venju samkvæmt hefur verið haldin friðsæl athöfn við tendrun Friðarsúlunnar til að heiðra minningu tónlistarmannsins Johns Lennons. Friðarsúlan er hugarfóstur myndlistarmannsins, tónlistarmannsins og friðarsinnans Yoko Ono og er hugsuð sem leiðarljós fyrir heimsfriði. En því miður verður ekki hægt að halda slíka athöfn í ár vegna veðurs.
Ljós Friðasúlunnar verður eftir sem áður tendrað í kvöld kl. 20:00 á fæðingardegi Johns Lennons, eiginmanns Yoko Ono.
Elding sem sér um ferjuferðir út í Viðey segir vindáttina mjög óhagstæða til siglinga yfir sundið og hefur aflýst öllum ferjuferðum í dag og á morgun. Þó veður geti virst ágætt skal öryggi ávallt haft í fyrirrúmi og því er þessi ákvörðun tekin í samráði við þau sem að viðburðinum koma auk viðbragðsaðila.
Þrátt fyrir að viðburðinum sé aflýst þá er hægt að fylgjast með tendruninni frá sófanum heima í beinu streymi á vef IMAGINE PEACE TOWER kl. 20:00, spila Imagine, lag Lennons, og hugsa um frið.
Hugsum okkur frið!