back

Landnámssýningin lokuð 17.-31. janúar 2020

20.12.2019 X

Landnámssýningin verður lokuð 17.-31. janúar 2020 vegna framkvæmda.

Verið er að vinna í því að stækka Landnámssýninguna í Aðalstræti 16 með því að tengja hana yfir í elsta timburhús borgarinnar sem er til húsa í Aðalstræti 10. Dagana 17.-31. janúar verður lagt nýtt gólfefni í undirgöngin sem liggja á milli húsanna en við það lokast önnur flóttaleið frá Landnámssýningunni af tveimur. Öryggisins vegna þarf því að loka Landnámssýningunni á meðan.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi tímabundna lokun sýningarinnar kann að valda.

Nánari upplýsingar gefur Helga Maureen Gylfadóttir, helga.maureen.gylfadóttir@reykjavik.is.

Tvær stúlkur á Landnámssýningunni