back
Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur
Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 28. ágúst kl. 14. Mótið gefur einstakt tækifæri til að takast á við skákgyðjuna í sögulegu umhverfi Árbæjarsafns.

Tefldar verða sjö umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik (4+2). Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, 15.000 kr., 10.000 kr. og 5.000 kr. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Núverandi Árbæjarsafnsmeistari er alþjóðlegi meistarinn Davíð Kjartansson, en hann hefur unnið mótið oftast allra, eða fimm sinnum.
Óskað er eftir því að keppendur skrái sig í gegnum hefðbundið skráningarform. Skákstjóri verður Eiríkur Björnsson.
Þátttökugjald er greitt með því að greiða aðgangseyri inn á safnið samkvæmt gjaldskrá Árbæjarsafns. Frítt er fyrir 67 ára og eldri, öryrkja og börn 17 ára og yngri. Þátttökugjaldið er greitt við inngang safnsins.
Árbæjarsafn er hluti af Borgarsögusafni – eitt safn á fimm frábærum stöðum