back

Tendrun Friðarsúlunnar 9. okt. 2023

02.10.2023 X

Kveikt verður á Friðarsúlunni í Viðey í 17. sinn mánudaginn, 9. október klukkan 20:00. Í eyjunni verður friðsæl athöfn en 9. október er fæðingardagur Johns Lennon og mun Friðarsúlan varpa ljósi upp í himininn til 8. desember sem er dánardægur hans.

Boðið er upp á fríar ferjusiglingar fyrir og eftir athöfn. Borgarsögusafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur og fleiri halda úti dagskrá í Viðey sem hefst kl. 17:45 og stendur til kl. 21:30.

Siglingar og Strætó

Yoko Ono býður upp á fríar siglingar yfir sundið. Siglt verður frá Skarfabakka frá kl. 17:30 til kl. 19:30. Athugið að vegna mikillar aðsóknar undanfarin ár þarf að bóka miða fyrirfram, en aðeins 5 manns geta bókað sig á sama miða.

Strætóferðir verða frá Hlemmi að Skarfabakka á hálftíma fresti. Fyrsti vagn fer frá Hlemmi kl. 17:30 og ekið verður til kl. 19:00. Farþegar þurfa að borga almennt fargjald.

Hægt verður að kaupa veitingar í Viðeyjarnausti og Viðeyjarstofu.

Dagskrá:

Listasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur og fleiri halda úti dagskrá sem hefst kl. 17:45 og stendur til kl. 21:00.

  • 17:45 - Ganga á vegum Listasafns Reykjavíkur um verk Richard Serra og Yoko Ono
  • 18:00 - Söguganga á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur
  • 18:45 - Ganga á vegum Listasafns Reykjavíkur um verk Richard Serra og Yoko Ono
  • 19:00 - Söguganga á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur

Dagskrá vegna Friðarsúlu

  • 19:40 - Emilíana Torrini og vinir flytja tónlist við Friðarsúluna. Auk Emilíönu eru valinkunnir tónlistarmenn þau Pétur Ben, Helgi Jónsson, Markéta Irglová og Tina Dickow
  • 19:58 - Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri flytur ávarp
  • 20:00 - Friðarsúlan tendruð undir laginu Imagine eftir John Lennon og Yoko Ono

Fyrsta ferja eftir tendrun Friðarsúlunnar siglir frá Viðey kl. 20:30. Hægt verður að taka strætó frá Skarfabakka að Hlemmi frá kl. 20:40 og þar til lokið verður að flytja gesti úr Viðey.

Friðarsúlan „Imagine Peace Tower“ er útilistaverk eftir Yoko Ono sem var reist í Viðey árið 2007 til að heiðra minningu Johns Lennons. Friðarsúlan er tendruð árlega á fæðingardegi Lennons þann 9. október og lýsir til 8. desember sem er dánardagur hans. Listaverkið er tákn fyrir baráttu Ono og Lennons fyrir heimsfriði. Friðarsúlan, er í formi óskabrunns en á hana eru grafin orðin „hugsa sér frið“ á 24 tungumálum en enska heitið er vísun í lagið „Imagine“ eftir John Lennon. 

 

Friðarsúlan í Viðey
Tendrun Friðarsúlunnar í Viðey