Hvað er sýning? (elsti árgangur)
Hvernig ætli sýning sé búin til á ljósmyndasafni? Er ljósmyndasýning ólík öðrum sýningum t.d. leiksýningum?
/*php $markup = $content['field_mynd_stor'][0]['#markup']; $markup = str_replace('typeof="foaf:Image"', 'typeof="foaf:Image" class="lightbox"', $markup); $content['field_mynd_stor'][0]['#markup'] = $markup; */?>
Hámarksfjöldi: 15 |
Aldur: 5-6 ára |
Tími: 40-50 mín. |
Hvernig ætli sýning sé búin til á ljósmyndasafni? Er ljósmyndasýning ólík öðrum sýningum t.d. leiksýningum? Æfum myndlæsi og spjöllum um það sem fyrir augu ber.
Hvað gerum við í heimsókninni?
- Safnkennari tekur á móti hópnum á 6. hæð í Grófarhúsinu, Tryggvagötu 15.
- Sýning safnsins skoðuð í gegnum samtal um liti og myndefni.
- Polaroid myndavél skoðuð og safnkennari tekur myndir af hópnum sem börnin fylgjast með framkallast. Þannig verður til ljósmyndasýning sem kennarar taka með í leikskólann að lokinni heimsókn.
Vinsamlegast athugið að hámarksfjöldi í heimsóknina eru 15 einstaklingar, þ.m.t. kennarar og aðrir starfsmenn.