Kubburinn 26.06.2015 til 13.09.2015

Dagur Gunnarsson - Á förnum vegi

Góðar andlitsmyndir hreyfa við okkar innsta kjarna því þær vekja forvitni og viðbrögð sem spanna allan tilfinningaskalann. Við skönnum stöðugt þau andlit sem verða á vegi okkar, það er hluti af viðvörunarkerfi undirmeðvitundarinnar. Er viðkomandi vinveittur eða fjandsamlegur? Skyldur okkur eða framandi? Glaður eða reiður?

Á FÖRNUM VEGI

Andlitsmyndir tala til okkar með beinum hætti. Það þarf engin prófskírteini til að lesa í andlit – það er hæfileiki sem við fáum í vöggugjöf.

Þær myndir sem hér birtast eru af fólki sem hefur orðið á vegi ljósmyndarans af ýmsum ástæðum. Sumir eru vinir og vandamenn eða samstarfsfólk sem hefur ekki getað skotið sér undan linsunni. Aðrir hafa verið viðmælendur mínir í einhverjum fjölmiðli, það útskýrir hátt hlutfall listamanna í þessari myndaröð.

Er myndin trú viðfangsefninu? Er hægt að túlka innsta kjarna fyrirsætunnar með einni ljósmynd? Er það yfir höfuð eftirsóknarvert?

Dagur hefur komist að þeirri niðurstöðu að fólk er einfaldlega heillandi, það er gefandi að skoða andlit, gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn og semja sögur við hvert andlit. Við búum í samfélagi manna og þessi myndaröð er hluti af ævilöngu rannsóknarstarfi á því samfélagi.  Með því að skoða annað fólk er ljósmyndarinn ósjálfrátt að líta í eigin barm, í leit að sjálfum sér hugsanlega, bera sig saman við annað fólk í gegnum linsuna, spegla sig í öðrum.

Dagur Gunnarsson nam ljósmyndun í London College of Printing og útskrifaðist 1995. Hann hefur stundað ljósmyndun frá unga aldri og hefur hann sérhæft sig í andlitsmyndum.
Fólk er viðfangsefni Dags hvort sem hann hefur starfað í fjölmiðlum eða ferðamennsku og það sama gildir um ljósmyndunina. Útskriftarverkefni Dags úr LCP voru svarthvít portrett og hann hefur haldið áfram á þeirri braut. Dagur hefur sýnt tvisvar áður í Reykjavík, á Mokka 1991 og í Gallerí Grums á Laugavegi 2009 og myndir hans hafa birst á vefmiðlunum ruv.is og mbl.is.
Margir viðmælendur hans í Ríkisútvarpinu þurfa einnig að sitja fyrir á mynd og þegar facebook kom til skjalanna stofnaði Dagur ljósmyndamöppu með heitinu The people I meet og safnaði í hana 500 andlitsmyndum svo úr varð einskonar dagbók með andlitsmyndum. Dagur lokaði því verkefni en hélt áfram að mynda fólk sem á vegi hans varð af miklum móð og er sýningin Á förnum vegin afraksturinn af slíkum myndatökum síðastliðin fimm ár.

Sýningin er styrkt af Menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar.

Sýningarstjóri er Harri Gylfason.

Tónlist eftir Jóhann Jóhannsson.

Upplýsingar

Upplýsingar

Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Grófarhús, Tryggvagata 15, 6. hæð

101 Reykjavík

Sími: (+354) 411 6390

Hafðu samband

Tekið á móti hópum (10+) eftir samkomulagi

Skólaheimsóknir

Hafðu samband

Opið

Opið

mán-fim 10:00-18:00

fös 11:00-18:00

helgar 13:00-17:00

Jólahátíðin

Lokað 24.-26. des og 31. des- 1. jan.

Páskahátíðin

Lokað páskahelgina frá fim-mán

Sumardagurinn fyrsti.

Lokað

Verkalýðsdagurinn

Lokað 1. maí

Uppstigningardagur

Lokað

Hvítasunna

Lokað

Þjóðhátíðardagurinn

Lokað 17. júní

Aðgangseyrir

Aðgangur

Fullorðnir

1.240 kr.

Börn og öryrkjar

Frítt

Nemendur með gilt skólaskírteini

850 kr.

Menningarkort, árskort á borgarsöfnin

7.700 kr.

Menningarkort 67+, árskort

2.220 kr.

ICOM og FÍSOS korthafar

Frítt

Skráðu þig á póstlista ljósmyndasafnsins

Við sendum þér upplýsingar um viðburði, tilboð og fleira skemmtilegt.