Skotið 20.10.2022 til 29.01.2023

Daníel Bergmann │Fálkar

Fálkar er yfirskrift sýningar með ljósmyndum eftir Daníel Bergmann í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Sýningin stendur yfir frá 20. október 2022 til 29. janúar 2023.

Fálki á flugi / Flying Falcon
Fálki á flugi á Norðausturlandi

Við lok síðustu aldar hóf Daníel Bergmann að ljósmynda fálka í íslenskri náttúru. Að mestu leyti af því hann varð heillaður af þessum tignarlegu fuglum og átti erfitt með að halda sig frá þeim. En að hluta til af því hann fann sér ekkert erfiðara að gera. Fuglar kæra sig lítið um að vera ljósmyndaðir og ránfuglum er sérlega illa við slíka athygli. Til að fá aðgang að ólíkum þáttum í tilveru fálka þarf ljósmyndarinn oftar en ekki að fela sig, sitja kyrr svo dögum skiptir, kunna að umbera kulda og óþægindi en halda ávallt fullri athygli. Þá fyrst opnast dyrnar að veröld fálkans.  

Sýningin Fálkar er sýnishorn mynda úr bókinni Fálkinn sem kom út í október 2022. Bókin er afrakstur rúmlega tveggja áratuga vettvangsvinnu Daníels Bergmann á fálkaslóðum á Norðausturlandi. Þar ljósmyndaði hann fálka á öllum árstímum og fylgdi meðal annars eftir einstaklega glæsilegri fálkafrú í gegnum meirihluta lífshlaups hennar sem spannaði 15 ár. 

Daníel Bergmann (f. 1971) býr og starfar í Stykkishólmi. Hann hefur ástundað náttúruljósmyndun frá því um aldamótin með sérstakri áherslu á dýralíf og landslag norðurslóða. 

Nánari upplýsingar um ljósmyndarann má finna hér 

Ljósmyndarinn/ Photographer Daníel Bergmann
Ljósmyndarinn Daníel Bergmann

Upplýsingar

Upplýsingar

Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Grófarhús, Tryggvagata 15, 6. hæð

101 Reykjavík

Sími: (+354) 411 6390

Hafðu samband

Tekið á móti hópum (10+) eftir samkomulagi

Skólaheimsóknir

Hafðu samband

Opið

Opið

mán-fim 10:00-18:00

fös 11:00-18:00

helgar 13:00-17:00

Jólahátíðin

Lokað 24.-26. des og 31. des- 1. jan.

Páskahátíðin

Lokað páskahelgina frá fim-mán

Sumardagurinn fyrsti.

Lokað

Verkalýðsdagurinn

Lokað 1. maí

Uppstigningardagur

Lokað

Hvítasunna

Lokað

Þjóðhátíðardagurinn

Lokað 17. júní

Aðgangseyrir

Aðgangur

Fullorðnir

1.200 kr.

Börn og öryrkjar

Frítt

Nemendur með gilt skólaskírteini

820 kr.

Menningarkort, árskort á borgarsöfnin

7.450 kr.

ICOM og FÍSOS korthafar

Frítt

Skráðu þig á póstlista ljósmyndasafnsins

Við sendum þér upplýsingar um viðburði, tilboð og fleira skemmtilegt.