Skotið 18.08.2018 til 19.11.2018

Emilie Dalum - EMILIE

“Það má líkja vegferð einstaklings í lyfjameðferð við keppni í hnefaleikum þar sem keppandinn fær endurtekið á sig högg. Þreyttur og ringlaður stendur hann upp, aftur og aftur, og býr sig undir næstu lotu. Eftir hverja lotu missir hann kraft og þrek.”

Emilie Dalum
©Emilie Dalum

Aðeins 26 ára gömul greindist Emilie með krabbamein í sogæðakerfinu, heimsmynd hennar breyttist á einni nóttu. Í bataferlinu vann hún að ljósmyndaseríu sem ber titilinn Emilie og samstendur af ljósmyndum sem hún tók á fimm mánaða tímabili á meðan hún gekkst undir lyfjameðferð.

“Ég myndaði átökin og þá einangrun sem ég mætti í lyfjameðferðinni með hjálp tímastillis myndavélarinnar. Samspilið á milli mín, sjúkdómsins og myndavélarinnar var mjög náið. Með því að skrásetja meðferðina sá ég glögglega breytingar á sjálfri mér, líkamlegar og andlegar. Verandi ljósmyndari þá rann mér blóðið til skyldunnar að mynda bataferlið og upplifun mína á þessu stormasama ferðalagi. Ég faldi aldrei þá staðreynd að ég væri veik, þetta var raunveruleikinn, því skyldi ég að afneita honum?“  

Áhersla Emilie er á viðfangsefnið fremur en lokaafurðina sem leiðir af sér að myndbyggingin í verkum hennar er stundum skæld eða stuttaraleg. Ljósmyndastíll hennar er kraftmikill og sérstakur. Emilie er í stöðugri sjálfsskoðun. Lífsskilningur og skoðanir hennar eru mótaðar út frá samspili töfra, galla, ótta og ástar ásamt víxlverkandi áhrifum mannlegra samskipta. Sú áhersla speglast í verkum hennar.   

“Ég sekk mér í viðfangsefnið og tapa mér algerlega þegar verkefni grípur mig, ég gleymi að ég er ljósmyndari. Því er ég mjög tilfinningalega tengd verkum mínum, berskjölduð og viðkvæm.“

Emilie Dalum er ljósmyndari, listamaður og sýningastjóri, fædd og uppalin í Danmörku en búsett á Íslandi. Hún hefur síðustu ár stýrt árlegri listasýningu, The Factory, í Djúpavík. Þessi misserin vinnur hún að ljósmyndabók sem ber titilinn Michael.

www.emiliedalum.com   

Upplýsingar

Upplýsingar

Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Grófarhús, Tryggvagata 15, 6. hæð

101 Reykjavík

Sími: (+354) 411 6390

Hafðu samband

Tekið á móti hópum (10+) eftir samkomulagi

Skólaheimsóknir

Hafðu samband

Opið

Opið

mán-fim 10:00-18:00

fös 11:00-18:00

helgar 13:00-17:00

Jólahátíðin

Lokað 24.-26. des og 31. des- 1. jan.

Páskahátíðin

Lokað páskahelgina frá fim-mán

Sumardagurinn fyrsti.

Lokað

Verkalýðsdagurinn

Lokað 1. maí

Uppstigningardagur

Lokað

Hvítasunna

Lokað

Þjóðhátíðardagurinn

Lokað 17. júní

Aðgangseyrir

Aðgangur

Fullorðnir

1.200 kr.

Börn og öryrkjar

Frítt

Nemendur með gilt skólaskírteini

820 kr.

Menningarkort, árskort á borgarsöfnin

7.450 kr.

ICOM og FÍSOS korthafar

Frítt

Skráðu þig á póstlista ljósmyndasafnsins

Við sendum þér upplýsingar um viðburði, tilboð og fleira skemmtilegt.