Julia Hechtman │Ekki einu sinni
Ekki einu sinni er titill sýningar Julia Hechtman sem stendur yfir í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur 19. ágúst -22. október 2023.
/*php $markup = $content['field_mynd_stor'][0]['#markup']; $markup = str_replace('typeof="foaf:Image"', 'typeof="foaf:Image" class="lightbox"', $markup); $content['field_mynd_stor'][0]['#markup'] = $markup; */?>
Julia hóf vinnu við verkið "Ekki einu sinni" þegar hún dvaldi á Íslandi sem Fulbright styrkþegi. Verkið samanstendur af stuttum vídeó portrettmyndum.
Julia tók viðtöl við fjölmarga Íslendinga sem deildu með henni sinni persónulegu reynslu af ákveðnum stöðum og þeim tilfinningum sem þessi ákveðni staður kveikir í brjósti viðmælanda. Í kjölfarið heimsótti hún staðina og tók þá upp á vídeó. Þegar vídeóverkið og persónuleg reynsla einstaklings eru samtvinnuð skapast einlæg og myndræn frásögn. Þegar frásagnar aðferðirnar tvær renna saman, skapa þær þriðju frásögnina; upplifun áhorfandans.
Í verkum Juliu eru hugtökin fjarvera og nærvera í brennidepli, líf og dauði, rauntími og fjarlægar minningar. Náttúran er allt umlykjandi í verkum hennar, sá fókus hefur gefið henni frjálsræði til að ferðast um heiminn og gaumgæfa hið kunnuglega í ókunnugu umhverfi.
Julia útskrifaðist með BFA gráðu frá Syracuse University í New York og MFA gráðu frá University of Illinois í Chicago. Hún starfar sem fulltrúi í lista og hönnunardeild Northeastern University.
https://www.juliahechtman.com/
