27.09.2003 til 01.12.2003

MAGNÚS ÓLAFSSON - Ljósmyndari

Magnús Ólafsson (1862-1937) er einn helsti frumherji í íslenskri ljósmyndun.

Magnús Ólafsson

Verk Magnúsar, sem eru kjölfestan í safneign Ljósmyndasafns Reykjavíkur, varpa ljósi á tímabilið frá aldamótum 1900 fram undir miðbik 20. aldar og fletta upp svipmyndum frá tímabili er samhliða tækniframförum einkenndist af þjóðfélagsbreytingum og þróun borgarsamfélags í Reykjavík.
Segja má að Magnús hafi verið ljósmyndari Reykjavíkur en myndir hans hafa veitt okkur einkar fjölþætta sýn á höfuðstaðinn á þessum tíma. Fjöldaframleiðsla stereóskópmynda sem hann innleiddi inn á íslenskan ljósmyndamarkað höfðu víðtæk áhrif á myndsýn þjóðarinnar og nutu þær einnig  vinsælda erlendis þar sem þær vöktu athygli á landslagi og náttúrufegurð landsins.  Einnig varð Magnús fyrstur Íslendinga til að lita stækkaðar ljósmyndir og notaði til þess vatnsliti.

Á þessari yfirlitssýningu verða um 80 ljósmynda Magnúsar sem skipt er í fimm meginflokka; Portrett, Atvinnulíf, Reykjavík, Landsbyggðin og Atburðir og spanna myndirnar feril hans sem ljósmyndara frá árinu 1901 fram til dánardægurs árið 1937.  Sýningin um Magnús fléttar saman bæði sögulegri og listrænnri arfleifð íslenskrar ljósmyndunar og varpar ljósi á hversu mikilvægan þátt hann átti í að skapa þá mynd sem við gerum okkur af Reykjavík og Íslandi í heild sinni í upphafi 20. aldar.

Upplýsingar

Upplýsingar

Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Grófarhús, Tryggvagata 15, 6. hæð

101 Reykjavík

Sími: (+354) 411 6390

Hafðu samband

Tekið á móti hópum (10+) eftir samkomulagi

Skólaheimsóknir

Hafðu samband

Opið

Opið

mán-fim 10:00-18:00

fös 11:00-18:00

helgar 13:00-17:00

Jólahátíðin

Lokað 24.-26. des og 31. des- 1. jan.

Páskahátíðin

Lokað páskahelgina frá fim-mán

Sumardagurinn fyrsti.

Lokað

Verkalýðsdagurinn

Lokað 1. maí

Uppstigningardagur

Lokað

Hvítasunna

Lokað

Þjóðhátíðardagurinn

Lokað 17. júní

Aðgangseyrir

Aðgangur

Fullorðnir

1.200 kr.

Börn og öryrkjar

Frítt

Nemendur með gilt skólaskírteini

820 kr.

Menningarkort, árskort á borgarsöfnin

7.450 kr.

ICOM og FÍSOS korthafar

Frítt

Skráðu þig á póstlista ljósmyndasafnsins

Við sendum þér upplýsingar um viðburði, tilboð og fleira skemmtilegt.