Olaf Otto Becker: Ís og land – Ljósmyndir frá Íslandi og Grænlandi 1999–2017
Áhrifamiklar og ægifagrar landslagsljósmyndir Olafs Ottos Beckers fjalla um breytingaferli í náttúrunni sem orsakast af loftslagsbreytingum og öðrum manngerðum áhrifum. Í verkum hans sameinast persónuleg og listræn nálgun á heimildaljósmyndun sem vekur upp spurningar um félagslega og menningarlega þætti í samtímanum.
/*php $markup = $content['field_mynd_stor'][0]['#markup']; $markup = str_replace('typeof="foaf:Image"', 'typeof="foaf:Image" class="lightbox"', $markup); $content['field_mynd_stor'][0]['#markup'] = $markup; */?>
Á sýningunni „Ís og land – Ljósmyndir frá Íslandi og Grænlandi 1999–2017“ er stillt saman verkum úr margverðlaunuðum ljósmyndaverkefnum Beckers, sem einnig eru gefin út sem ljósmyndabækur. Annars vegar úr „Under the Nordic Light: A Journey Through Time: Iceland 1999–2011“ þar sem ásýnd íslensks landslags og hvernig það breytist með tímanum er í miðpunkti og hins vegar úr þremur verkefnum hans frá Grænlandi: „Broken Line“ (2007), „Above Zero“ (2009) og hinu nýútkomna „Ilulissat–Sculptures of Change—Greenland 2003–2017“. Öll fjalla þau um áhrif hnattrænnar hlýnunar og hvernig við erum vitni að henni með því að horfa upp á bráðnun jökla.
Myndunum frá Íslandi er stillt upp bæði einum og sér og í pörum. Þær sýna sömu staðina, út frá sama sjónarhorninu og sömu birtu, með 10-12 ára millibili. Þar sjást glöggt breytingar á íslensku landslagi sem tilkomnar eru vegna orkuframleiðslu og hnattrænnar hlýnunar en einnig eru myndir sem sýna einungis smávægilegar breytingar.
Á Grænlandi lagði ljósmyndarinn á sig líkamlega erfið, oft lífshættuleg ferðalög, m.a. í árabátum á íshafi, meðfram jökulsprungum og um fljótandi íshella – ávallt með óþjála stórformatsmyndavél sína í farteskinu. Stórbrotin portrett Beckers draga fram yfirþyrmandi fegurð þessa ískalda landslags um leið og þau skrásetja hversu brothætt núverandi ástand er. Ryk og ryð í loftinu myndar svarta harða veðrunarkápu sem flýtir bráðnun ísbreiðunnar og hefur óumflýjanlega, gríðarlega skaðlegar afleiðingar.
Um verk sín segir Becker: „Ég sæki í jaðarlandslag þar sem ósnert náttúra mætir manninum. Ég horfi á sjálfan mig sem vitni að samtíma okkar og verð stundum orðlaus yfir fegurð náttúrunnar sem og hinum hröðu breytingum sem verða fyrir tilstilli mannsins og sjást í landslaginu. Ég sé myndir mínar sem glugga að því sem ég hef séð og með þeim gef ég áhorfandanum hlutdeild í því sem hreyfði við mér.“
Olaf Otto Becker fæddist í Þýskalandi árið 1959. Hann nam upplýsingahönnun, heimspeki og stjórnmálafræði. Frá árinu 2003 hefur hann unnið sjálfstætt að eigin verkefnum og birtast landslagsmyndir hans reglulega í tímariti New York Times. Þær eru einnig sýndar um allan heim á alþjóðlegum ljósmyndahátíðum, söfnum og galleríum. Einnig er þær að finna í fjölda einkasafna og í opinberum söfnum.
Í Kubbnum verður sýnd upptaka af fyrirlestri ljósmyndarans um þessi tilteknu ljósmyndaverkefni.