Fornleifarannsókn

Skýrsla 213 Útgáfuár 2021

Fornar rætur Árbæjar - Fornleifarannsókn. Áfangaskýrsla 2020

Fornar rætur Árbæjar er fornleifarannsókn á bæjarstæði Árbæjar í Árbæjarsafni, sem hófst árið 2016 á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur í samstarfi við námsbraut í fornleifafræði, jarðvísindadeild og Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Í skýrslunni er greint frá þeim áfanga rannsóknarinnar sem unninn var á tímabilinu 20. júlí til 4. september 2020.