Um er að ræða könnun byggðar í borgarhlutanum Árbæ í Reykjavík (borgarhluta 7), en svæðið afmarkast af Vesturlandsvegi í norðri og Suðurlandsvegi í austri, en til vesturs, suðurs og suðausturs af Elliðaánum og ánni Bugðu. Byggðakönnunin er unnin að beiðni Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur vegna vinnu við gerð hverfisskipulags fyrir svæðið. Skýrslan inniheldur samantekt um sögu svæðisins, skrá yfir fornleifar og yngri minjar í borgarhlutanum, skrá yfir hverfishluta og varðveislumat og tillögur um hverfisvernd húsa og heilda í borgarhlutanum.
Byggðakönnun
Fornleifaskrá