Skólahópar

1 safn > 5 staðir > 4 skólastig

Borgarsögusafn Reykjavíkur býður upp á fræðslu fyrir skólahópa á fimm sýningarstöðum sínum: Árbæjarsafni, Landnámssýningunni, Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Sjóminjasafninu í Reykjavík og Viðey. Fræðsluframboð safnsins taka mið af aldri og aðalnámskrá hvers skólastigs.

Safnfræðsla fyrir skóla- og frístundahópa er án endurgjalds. Við mælum eindregið með því að safnheimsóknir séu nýttar sem hluti af námi allt árið um kring. Þannig skapast ótal tækifæri til þess að læra á virkan og skapandi hátt.

HÉR má skoða fræðsluframboð Borgarsögusafns Reykjavíkur skipt eftir skólastigum. Bókið heimsóknir á Árbæjarsafn, Landnámssýninguna, Ljósmyndasafn, Sjóminjasafnið og Viðey fyrir leik- og grunnskóla, hópa í skipulögðu frístundastarfi sem og framhalds- og háskóla. Hægt er að bóka heimsóknina rafrænt á síðunni með því að smella á hnappinn við þá fræðslu sem er valin. Veldu tíma - og dagsetningu, skráðu síðan nánari upplýsingar um hópinn. Staðfesting er síðan send í pósti.

Fræðsluteymi Borgarsögusafns býður upp á vandaða safnfræðslu fyrir nemendur á öllum skólastigum. Við tökum einnig á móti hópum í frístundastarfi og ýmiskonar sérhópum á öllum aldri. Við vinnum eftir fræðslustefnu þar sem þátttaka, sköpun og aðgengi fyrir alla er haft að leiðarljósi. Starfið er í sífelldri þróun og við viljum beita fjölbreyttum kennsluaðferðum í virku samtali við safngesti og samfélag.

 

Fræðslustefna Borgarsögusafns Reykjavíkur 2015-2018

Nám á safni er margbreytilegt og það á jafnt við formlegt nám og þekkingarleit einstaklinga og hópa. Nám er ferli sem krefst virkni og mótast af miklu leyti af fyrri reynslu gestsins, menningu hans og umhverfi. Safnfræðslan snýst um að virkja gesti til að afla sér þekkingar í samtali við frjóan vettvang safneignar, sýninga og annarrar miðlunar. Fræðslustarf Borgarsögusafns miðar að því að auka vægi þátttöku og sköpunar í starfi sínu.

​HÉR er rafræn útgáfa af fræðslubæklingi Borgarsögusafns fyrir skólaárið 2019 - 2020.

Hafðu samband! Netfang: safnfraedsla@reykjavik.is

Fylgstu með okkur á Facebook! www.facebook.com/safnfraedsla