Um er að ræða könnun byggðar, fornleifaskrá og húsakönnun, fyrir deiliskipulagsreit í Vesturbæ Reykjavíkur sem nær yfir lóðina Eggertsgötu 2-34, á norðvesturhorni Suðurgötu og Eggertsgötu. Á lóðinni standa alls 17 hús, fjölbýlishús og leikskólabygging í eigu Félagsstofnunar stúdenta, byggð á árunum 1972-2002. Skýrslan er unnin að beiðni Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur vegna vinnu við gerð deiliskipulags fyrir svæðið.
Gerð er grein fyrir helstu atriðum í sögu svæðisins, eldri byggð og þróun svæðisins til dagsins í dag. Skráð eru þau hús sem standa á svæðinu í dag og gerð grein fyrir varðveislugildi þeirra og tillögum um hverfisvernd. Jafnframt inniheldur skýrslan skrá yfir fornleifar og yngri minjar á deiliskipulagssvæðinu.