Borgarsögusafn Reykjavíkur gefur út skýrsluröð þar sem birtar eru niðurstöður hinna ýmsu rannsókna sem safnið stendur að, einkum á sviði byggðasögu Reykjavíkur og fornleifa- og húsarannsókna. Skýrsluröðin hóf göngu sína árið 1989, þá undir merkjum Árbæjarsafns og seinna Minjasafns Reykjavíkur.
Nýjustu skýrslurnar eru aðgengilegar hér á síðunni á rafrænu formi (pdf). Eldri skýrslur er flestar hægt að kaupa á Árbæjarsafni á opnunartíma skrifstofu 9:00-16:00 (sími 411 6300, netfang borgarsogusafn@reykjavik.is). Einnig eru þær skráðar í bókasafnskerfið Gegni og fáanlegar á lestrarsal Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.
Verðskrá:
10-50 bls. – 2000 kr.
50-75 bls. – 3000 kr.
75-100 bls. – 4000 kr.
Í Borgarvefsjá má fá yfirlit á korti yfir húsakannanir sem unnar hafa verið á vegum Borgarsögusafns (Árbæjarsafns). Í valglugga vinstra megin á síðunni er opnaður fellilisti undir „Menningarminjar“ og hakað við húsakannanir. Til að fá nánari upplýsingar um hverja skýrslu er smellt á skyggt svæði á kortinu, þá opnast gluggi með upplýsingum og hlekk á pdf-skjal.
Númer![]() |
Titill skýrslu | Tegund | Útgáfuár |
---|---|---|---|
212 | Ártúnshöfði. Fornleifaskrá | Fornleifaskrá | 2021 |
213 | Fornar rætur Árbæjar - Fornleifarannsókn. Áfangaskýrsla 2020 | Fornleifarannsókn | 2021 |
214 | Holtsgata 10-12 og Brekkustígur 16. Fornleifaskrá og húsakönnun | Fornleifaskrá, Húsakönnun | 2021 |
215 | Fornleifaskrá. Vesturgata - Framkvæmdasvæði frá Stýrimannastíg að Bræðraborgarstíg og þaðan niður að Hlésgötu | Fornleifaskrá | 2021 |
216 | Byggðakönnun. Borgarhluti 6 – Breiðholt | Byggðakönnun, Fornleifaskrá | 2021 |
217 | Rauðhólar. Fornleifaskrá | Fornleifaskrá | 2021 |
218 | Sörlaskjól. Fornleifaskrá | Fornleifaskrá | 2022 |
220 | Stúdentagarðar við Eggertsgötu. Fornleifaskrá og húsakönnun | Fornleifaskrá, Húsakönnun | 2022 |
221 | KR-svæðið - Frostaskjól 2-6. Húsakönnun | Húsakönnun | 2022 |
222 | Keldur og Keldnaholt. Húsakönnun | Húsakönnun | 2022 |