Borgarsögusafn Reykjavíkur gefur út skýrsluröð þar sem birtar eru niðurstöður hinna ýmsu rannsókna sem safnið stendur að, einkum á sviði byggðasögu Reykjavíkur og fornleifa- og húsarannsókna. Skýrsluröðin hóf göngu sína árið 1989, þá undir merkjum Árbæjarsafns og seinna Minjasafns Reykjavíkur.
Nýjustu skýrslurnar eru aðgengilegar hér á síðunni á rafrænu formi (pdf). Eldri skýrslur er flestar hægt að kaupa á Árbæjarsafni á opnunartíma skrifstofu 9:00-16:00 (sími 411 6300, netfang borgarsogusafn@reykjavik.is). Einnig eru þær skráðar í bókasafnskerfið Gegni og fáanlegar á lestrarsal Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.
Verðskrá:
10-50 bls. – 2000 kr.
50-75 bls. – 3000 kr.
75-100 bls. – 4000 kr.
Í Borgarvefsjá má fá yfirlit á korti yfir húsakannanir sem unnar hafa verið á vegum Borgarsögusafns (Árbæjarsafns). Í valglugga vinstra megin á síðunni er opnaður fellilisti undir „Menningarminjar“ og hakað við húsakannanir. Til að fá nánari upplýsingar um hverja skýrslu er smellt á skyggt svæði á kortinu, þá opnast gluggi með upplýsingum og hlekk á pdf-skjal.
Númer![]() |
Titill skýrslu | Tegund | Útgáfuár |
---|---|---|---|
189 | Fornleifaskráning vegna deiliskipulags Vesturlandsvegar frá Leirvogsá að Hvalfirði | Fornleifaskrá | 2018 |
188 | Fornleifaskráning vegna deiliskipulags 1. áfanga við Gufunes | Fornleifaskrá | 2018 |
187 | Fornleifaskráning Úlfarsárdals | Fornleifaskrá | 2017 |
186 | Eldri byggð á lóð Stjórnarráðsins | Fornleifaskrá | 2017 |
185 | Skeifan. Fornleifaskrá og húsakönnun | Fornleifaskrá, Húsakönnun | 2017 |
184 | Húsakönnun. Heklureitur. Bolholt – Brautarholt – Laugavegur – Nóatún – Skipholt | Húsakönnun | 2017 |
183 | Byggðakönnun. Borgarhluti 7 – Árbær | Byggðakönnun, Fornleifaskrá | 2017 |