Borgarsögusafn Reykjavíkur gefur út skýrsluröð þar sem birtar eru niðurstöður hinna ýmsu rannsókna sem safnið stendur að, einkum á sviði byggðasögu Reykjavíkur og fornleifa- og húsarannsókna. Skýrsluröðin hóf göngu sína árið 1989, þá undir merkjum Árbæjarsafns og seinna Minjasafns Reykjavíkur.
Nýjustu skýrslurnar eru aðgengilegar hér á síðunni á rafrænu formi (pdf). Eldri skýrslur er flestar hægt að kaupa á Árbæjarsafni á opnunartíma skrifstofu 9:00-16:00 (sími 411 6300, netfang borgarsogusafn@reykjavik.is). Einnig eru þær skráðar í bókasafnskerfið Gegni og fáanlegar á lestrarsal Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.
Verðskrá:
10-50 bls. – 2000 kr.
50-75 bls. – 3000 kr.
75-100 bls. – 4000 kr.
Í Borgarvefsjá má fá yfirlit á korti yfir húsakannanir sem unnar hafa verið á vegum Borgarsögusafns (Árbæjarsafns). Í valglugga vinstra megin á síðunni er opnaður fellilisti undir „Menningarminjar“ og hakað við húsakannanir. Til að fá nánari upplýsingar um hverja skýrslu er smellt á skyggt svæði á kortinu, þá opnast gluggi með upplýsingum og hlekk á pdf-skjal.
Númer |
Titill skýrslu![]() |
Tegund | Útgáfuár |
---|---|---|---|
210 | Laugavegur sem göngugata 2. áfangi. Fornleifaskrá | Fornleifaskrá | 2021 |
200 | Nauthólsvík og Nauthólsvegur. Fornleifaskrá og húsakönnun | Fornleifaskrá, Húsakönnun | 2019 |
204 | Nýi-Skerjafjörður. Fornleifaskrá og húsakönnun | Fornleifaskrá, Húsakönnun | 2021 |
217 | Rauðhólar. Fornleifaskrá | Fornleifaskrá | 2021 |
198 | Sjómannaskólareitur. Nóatún - Háteigsvegur - Vatnsholt - Skipholt. Fornleifaskrá og húsakönnun | Fornleifaskrá, Húsakönnun | 2019 |
185 | Skeifan. Fornleifaskrá og húsakönnun | Fornleifaskrá, Húsakönnun | 2017 |
206 | Skúlagata - Frakkastígur 1. Fornleifaskrá | Fornleifaskrá | 2020 |
218 | Sörlaskjól. Fornleifaskrá | Fornleifaskrá | 2022 |
220 | Stúdentagarðar við Eggertsgötu. Fornleifaskrá og húsakönnun | Fornleifaskrá, Húsakönnun | 2022 |
209 | Veðurstofuhæð. Fornleifaskrá | Fornleifaskrá | 2022 |
208 | Veðurstofuhæð. Húsakönnun | Húsakönnun | 2021 |