Ævintýraeyjan Viðey - 3 klst.
Saga, náttúra og listir. Viðey er frábær staður til að njóta útiveru í einstöku umhverfi. Þar er upplagt að fara í hópeflisleiki og rannsóknarleiðangra. Við mælum með dagsferð með nesti og skapandi dagskrá. Allir velkomnir.
/*php $markup = $content['field_mynd_stor'][0]['#markup']; $markup = str_replace('typeof="foaf:Image"', 'typeof="foaf:Image" class="lightbox"', $markup); $content['field_mynd_stor'][0]['#markup'] = $markup; */?>
Aldur: 6-12 ára |
|
Tími: 3 klst. |
HEIMSÓKN Í VIÐEY
Saga Viðeyjar og náttúra gefa grunninn að skemmtilegri útiveru í einstöku umhverfi.
Ath. Heimsóknin er bókuð neðst á þessari síðu. Því næst þarf að bóka ferjuna út í eyjuna hjá Eldingu.
Nestis- og salernisaðstaða er á tveimur stöðum í eynni:
• Hesthúsið er nestisaðstaða sem er staðsett fyrir aftan Viðeyjarstofu. Þar er kolagrill sem gestum er frjálst að nota auk salernis og leiksvæðis skammt frá.
• Viðeyjarnaust er aðstaða fyrir stærri hópa ásamt kolagrilli og salernisaðstöðu. Viðeyjarnaust stendur við fjöru sem gaman er að skoða.
Vinsamlegast athugið að áætlað er að þessi heimsókn taki 3 klst. Ef þið hafið hug á að dvelja í eyjunni lengur en 3 klst. þá er hægt að fara tilbaka um eitt skref og velja Ævintýraeyjan Viðey - 5 klst.