Ævintýraeyjan Viðey - 5 klst.
Saga, náttúra og list. Allir velkomnir.
/*php $markup = $content['field_mynd_stor'][0]['#markup']; $markup = str_replace('typeof="foaf:Image"', 'typeof="foaf:Image" class="lightbox"', $markup); $content['field_mynd_stor'][0]['#markup'] = $markup; */?>
Aldur: 6-12 ára |
|
Tími: 5 klst. |
HEIMSÓKN Í VIÐEY
Saga Viðeyjar og náttúra gefa grunninn að skemmtilegri útiveru í einstöku umhverfi.
Ath. Byrja þarf á að bóka ferjuna út í eyjuna hjá Gulla í Eldingu. Því næst er heimsóknin bókuð neðst á þessari síðu og er þar hægt að láta vita hvaða nestisaðstoðu hópurinn hyggst nýta sér ef svo ber undir.
Nestis- og salernisaðstaða er á tveimur stöðum í eynni:
• Hesthúsið er nestisaðstaða sem er staðsett fyrir aftan Viðeyjarstofu. Þar er kolagrill sem gestum er frjálst að nota auk salernis og leiksvæðis skammt frá.
• Viðeyjarnaust er aðstaða fyrir stærri hópa ásamt kolagrilli og salernisaðstöðu. Viðeyjarnaust stendur við fjöru sem gaman er að skoða.
Vinsamlegast athugið að áætlað er að þessi heimsókn taki 5 klst. Ef þið hafið hug á að dvelja í eyjunni skemur en 5 klst., þá er hægt að fara tilbaka um eitt skref og velja Ævintýraeyjan Viðey - 3 klst.