Ævintýraeyjan Viðey
Könnunarleiðangur um sögu, náttúru og listaverk eyjarinnar. Fræðsluhefti í boði sem veitir leikskólakennurum upplýsingar, innblástur og hugmyndir um hvað er gaman að skoða og gera með hóp í eynni.
/*php $markup = $content['field_mynd_stor'][0]['#markup']; $markup = str_replace('typeof="foaf:Image"', 'typeof="foaf:Image" class="lightbox"', $markup); $content['field_mynd_stor'][0]['#markup'] = $markup; */?>
Aldur: 4-6 ára |
Í boði 15. maí - 31. ágúst |
Tími miðast við ferjuferðir |
Fræðsluhefti fyrir leikskóla
Við komuna í Viðey er hægt að fá lánuð fræðsluhefti sem veitir kennurum upplýsingar, innblástur og hugmyndir um hvað er gaman að skoða og gera með skólahóp í eynni. Kennarar ráða svo förinni í eyjunni og geta valið að nota allt heftið eða hluta þess, eftir því sem hentar best.
Nestis- og salernisaðstaða er á tveimur stöðum í eynni:
• Hesthúsið er nestisaðstaða sem er staðsett fyrir aftan Viðeyjarstofu. Þar er kolagrill sem gestum er frjálst að nota auk salernis og leiksvæðis skammt frá.
• Viðeyjarnaust er aðstaða fyrir stærri hópa ásamt kolagrilli og salernisaðstöðu. Viðeyjarnaust stendur við fjöru sem gaman er að skoða.
Ef nýta á grillaðstöðu, þarf að taka allt viðeigandi með sér (kol, grillvökva, kveikjara, tangir, mat, diska o.s.frv.)
Næsta skref er að bóka heimsóknina neðst á þessari síðu, velja dagsetningu og taka fram hvar hópurinn ætlar að borða nesti.
Bókið Viðeyjarferjuna með því að senda póst á Eldingu hjá elding@elding.is. Þar er ákveðin nákvæmari tímasetning út frá lausum ferðum samkvæmt áætlun. Vinsamlegast athugið að hópar borga samkvæmt verðskrá Eldingar en frítt er fyrir 6 ára og yngri í fylgd með leikskólakennurum.
Áætlun ferjunnar:
Í boði: daglega frá 15. maí til 31. ágúst 2023
Brottför: 10:15, 11:15, 12:15, 13:15, 14:15, 15:15, 16:15 & 17:15
Til baka: 12:30, 13:30, 14:30, 15:30, 16:30, 17:30 & 18:30