Viðey 18.09.2015

Friðarsúlan

Friðarsúlan í Viðey er hugarfóstur myndlistarmannsins, tónlistarmannsins og friðarsinnans Yoko Ono og er hugsuð sem leiðarljós fyrir heimsfrið.

Viðey_Friðarsúlan.jpg
Friðarsúla Yoko Ono

Verkið er í formi „óskabrunns“ en á hann eru orðin „Hugsa sér frið“ grafin á 24 tungumálum. Upp úr brunninum stígur ljóssúla sem er saman sett úr fimmtán geislum sem sameinast í einu sterku ljósi. Sex ljósgeislanna fara lárétt um göng á palli í kring um brunninn og er endurkastað upp á við með speglum. Pallurinn er þakinn þrenns konar íslensku grjóti – líparíti, grágrýti og blágrýti. Þessi hönnun er táknræn tjáning Yoko Ono á leiðbeiningarverki sem hún gerði árið 1965 og nefnist Ljóshús. „Ljóshúsið er tálsýn, byggt úr tæru ljósi. Sláðu upp strendingum á ákveðnum tíma dags, við ákveðna kvöldbirtu sem streymir gegnum strendingana, og ljóshúsið birtist í miðju vallarins eins og táknmynd, nema hvað þessi táknmynd býður þér inngöngu ef þú vilt. Svo kann að fara að ljóshúsið birtist ekki daglega, alveg eins og sólin skín ekki daglega.“

Þann 9. október 2007 var listaverkið tileinkað minningu Johns Lennon sem hefði þá orðið 67 ára. Á hverju ári lýsir friðarsúlan frá 9. október (fæðingardegi Lennons) til 8. desember (dánardags hans). Einnig logar ljósið frá vetrarsólstöðum til nýársdags og eina viku að vori. Rafmagnið í súluna er framleitt úr jarðhita og kemur frá Hellisheiðarvirkjun.

Uppsetning friðarsúlunnar er samstarfsverkefni Yoko Ono, Reykjavíkurborgar, Listasafns Reykjavíkur og Orkuveitu Reykjavíkur.

„Hugsa sér allt fólkið lifa lífinu í friði.“
– John Lennon

„Draumur sem mann dreymir einn er aðeins draumur. Draumur sem okkur dreymir saman er raunveruleiki.“
– Yoko Ono

„Ég vona að friðarsúlan muni lýsa upp heitar óskir um heimsfrið hvaðanæva að úr veröldinni og veita hvatningu, innblástur og samstöðu í heimi þar sem nú ríkir ótti og ringulreið. Sameinumst um að gera friðsæla veröld að veruleika.“
– Yoko Ono

Vefur Friðarsúlunnar 

Kveikt er árlega á Friðarsúlunni á eftirfarandi dögum:

  • 9. október - 8. desember (frá fæðingardegi John Lennons til dánardægurs hans)
  • 21. - 31. desember
  • 18. febrúar
  • 20. - 27. mars

Upplýsingar

Upplýsingar

Viðey

104 Reykjavík

Sími: (+354) 411 6360

Sími: (+354) 519 5000

Almennar fyrirspurnir

Viðey - Borgarsögusafn

Veitingar og útleiga

Elding

Skólaheimsóknir

Hafðu samband

Opið

Opið

Sumar

15. maí - 31. ágúst siglt daglega.

Fyrsta sigling til Viðeyjar 10:15. Síðasta sigling frá Viðey 18:30.

Vetur

1. sept - 14.maí. Eingöngu siglt um helgar.

Aðgangseyrir

Ferjugjald

Fullorðnir

2.100 kr.

Börn 7 - 17 ára

1.050 kr.

Börn 0 - 6 ára

Ókeypis í fylgd fullorðinna

Eldri borgarar, 67 + og öryrkjar

1.890 kr.

Handhafar Menningarkorts Reykjavíkur

10% afsláttur

Verðlistinn gildir fyrir 2023

Skráðu þig á póstlista Viðey

Við sendum þér upplýsingar um viðburði, tilboð og fleira skemmtilegt.