Brúðkaup
/*php $markup = $content['field_mynd_stor'][0]['#markup']; $markup = str_replace('typeof="foaf:Image"', 'typeof="foaf:Image" class="lightbox"', $markup); $content['field_mynd_stor'][0]['#markup'] = $markup; */?>

Viðey er dásamlegur staður fyrir brúðkaup og hefur eyjan upp á margt að bjóða.
Viðeyjarkirkja er staðsett við hlið Viðeyjarstofu þar sem brúðhjón geta látið gefa sig saman og fallegt umhverfið gefur möguleika á fallegum brúðkaupsmyndum. Leiga á kirkjunni fyrir athöfn er 32.900 kr.
Til að bóka kirkjuna vinsamlegast sendið tölvupóst á videy@reykjavik.is
Gaman er að byrja veisluna með fordrykk fyrir utan húsið í fallegu umhverfi.
Efri hæð Viðeyjarstofu tekur allt 150 manns í sitjandi veislu og á neðri hæðinni eru minni herbergi sem henta fyrir minni hópa.
Starfsfólk Viðeyjarstofu leggur áherslu á faglega þjónustu, umgjörð og skreytingar sé með þínar óskir í huga svo veislan verði sniðin að þínum þörfum og takist vel.
Elding sér um að ferja fólk í eyjuna en hægt er að sigla frá Skarfabakka, Hörpu og Ægisgarði.
Frekari upplýsingar – videyjarstofa@videyjarstofa.is