Plöntur og fuglar í Viðey

Hér finnur þú upplýsingar um plöntur og fugla í Viðey
Plöntur

Fuglar

Þjóðtrú og lækningamáttur burnirótar
„Burnirót er góð til margs. Skal halda um hana með hreinum dúk, meðan hún er grafin upp, og skera grasið frá, því að það er illrar náttúru. Eigi má rótin koma undir bert loft; geyma skal hana í vígðri mold. Maður á að bera hana á sér um daga, en láta hana liggja við rúmstokk sinn um nætur, og mun manni þá ekkert ama“.
Jónas Jónasson frá Hrafnagili, Íslenzkir þjóðhættir (Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja 1961), bls. 409.
„Seyði af burnirót, inntekið, vermir, þurkar og dregur saman, læknar munnsviða, hreinsar nýru frá sandi, sem steinn af verður, stillir lífsýki, læknar höfuðverk og styrkir höfuð og líka hárvöxt ef að því er höfuð þvegið. Lögurinn úr blöðunum læknar vel ný sár og stillir blóðrás úr þeim, hreinsar þau og græðir. Rótin er góð að leggja yfir ill kaun. Söxuð, marin og elt saman við smjör, dreifir (hún) bólgu, linar bæði bakverk, liðaverk og fleiri sárindi, helst þá volgt er við lagt. Rótin þurr lætur vægja bólgu. Hún tekur freknur af hörundi manns, styrkir höfuð við það lögð. Í barkar stað, til skinna, má burn brúka og verður þá það skinn gulleitt. Grænlendingar eta þessa rót og fjallbændum í Noregi hefur verið ráðið til að planta hana hjá sér til manneldis. Hún er haldin heilnæm holdsveikum mönnum“.
Rit Björns Halldórssonar í Sauðlauksdal, Gísli Kristjánsson og Björn Sigfússon bjuggu til prentunar (Reykjavík: Búnaðarfélag Íslands 1983), bls 241-242.

Safnaráð