Á vettvangi │ Ólafur K. Magnússon blaðaljósmyndari

Ólafur K. Magnússon (1926–1997) var fyrsti fastráðni ljósmyndari dagblaðs á Íslandi þegar hann hóf störf á Morgunblaðinu árið 1947.

Ungur maður spilar á harmoniku að kvöldi til fyrir utan elliheimilið Grund. Barn í Silver Cross barnavagni fylgist með. Um 1948-1955. Ljósmynd: Ólafur K. Magnússon
Fyrsti dagurinn á Paramount-lóðinni mun ætíð verða mér eftirminnilegastur. Skjálfandi af tilhlökkun og kvíða steig eg inn fyrir hliðið á þessu risafyrirtæki. Er inn var komið opnaðist fyrir augum mér nýr heimur eða réttara sagt draumaheimur með sínar eigin borgir, byggingar, götur og íbúa.
- Ólafur K. Magnússon Vísir (18.05.1946)

Fyrirsætur stilla sér upp, sennilega í nágrenni Los Angeles 1945-46. Ljósmynd: Ólafur K. Magnússon
Reykjavík er undarleg borg andstæðna og mótsagna. Hún er einkennilegt sambland smáþorps og stórborgar, menningar og ómenningar, liðins tíma og nýrrar aldar, skipulags og skipulagsleysis, fátæktar og ríkidæmis, gróinnar arfleifðar og ringulreiðar, sögu og örlögleysis. Þetta er sá borgarbragur sem Ólafur hefur sinn feril í og endurspeglast glögglega í myndasafni hans fyrstu árin og áratugi í starfi.

Mótmæli og óeirðir á Austurvelli þann 30. mars 1949, daginn sem Alþingi samþykkti þingsályktunartillögu um inngöngu Íslands í Norður-Atlantshafsbandalagið. Ljósmynd: Ólafur K. Magnússon
Hann lagði áherslu á að ljósmyndarinn sæi fyrir sér, um leið og hann væri að mynda, hvernig myndirnar kæmu út á síðum blaðsins. Hvert væri sterkasta augnablikið í keðju atburðanna. Að lesendur blaðsins fengju ætíð sem besta yfirsýn yfir atburðinn í einni eða tveimur hnitmiðuðum myndum.
- Ragnar Axelsson ljósmyndari, Morgunblaðið (26.10.1997)