Aenne Bier­mann Preis │Þýsk samtíma­ljós­myndun

Irene Prüllege, 1999
-
Ljósmyndasafn

"Aenne Biermann Preis: þýsk samtímaljósmyndun" er sýning á ljósmyndum eftir 36 þýska samtímaljósmyndara sem tekið hafa þátt í ljósmyndasamkeppni sem kennd er við hinn kunna þýska ljósmyndara Aenne Biermann (1898-1933).

Biermann telst einn af merkustu listamönnum hinnar Nýju ljósmyndunar (Neue Fotografie) sem þróaðist samhliða Nýju hlutlægninnar á þriðja áratugi 20. aldar í Þýskalandi.