Anna Ósk Erlings­dótt­ir│Hug­ar­ástand

Anna Ósk Erlingsdóttir│Hugarástand
-
Ljósmyndasafn

"Hugarástand"er yfirskrift sýningar í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur með verkum Önnu Óskar Erlingsdóttur.

„Af hverju Hugarástand? Orðið sjálft skilgreinir í raun allt það sem ég vil fá út úr listrænni myndatöku. Ég vil að bæði módelið og síðan áhorfandinn ferðist inn í hugarheim sem ég skapa hverju sinni og hugarástand sem ég hef byggt upp, í samvinnu við góðan hóp fólks. Takmarkið er að með einni mynd opnist nýr heimur og ævintýri fyrir áhorfandanum sem svo örvar hugsunina. Ég vil ekki mata fólk með minni túlkun, ég vil að fólk skapi sína eigin“.

Anna Ósk Erlingsdóttir