Betur sjá augu . . . Ljósmyndun íslenskra kvenna 1872 – 2013

-
Ljósmyndasafn
Á sýningunni Betur sjá augu er að finna ljósmyndaverk eftir 34 konur sem eiga það sameiginlegt að hafa unnið við ljósmyndun hér á landi – flestar sem atvinnuljósmyndarar en einstaka sem áhugaljósmyndarar.
Lögð var áhersla á myndir þar sem persónuleg sýn og sköpun ljósmyndaranna nýtur sín og sem endurspegla um leið iðjusemi þeirra og áhuga á starfi sínu.