Einar Falur Ingólfs­son│Staðir – Úr dagbók 1988 – 2008

Einar Falur Ingólfsson│Staðir – Úr dagbók 1988 – 2008
-
Ljósmyndasafn

Viðfangsefni sýningarinnar "Staðir – Úr dagbók 1988 – 2008 " er að finna í dagbók ljósmyndarans Einars Fals Ingólfssonar sem hann hefur haldið frá árinu 1988 en sem skrásetningartæki notar hann þar myndavél í stað penna.

Myndirnar eru færslur í dagbókinni og sjálft myndavalið á sýningunni, rúmlega 100 myndir úr tugþúsundum mynda, er ekki síður jafn mikilvægt og myndatakan sjálf.