Flickr-flakk og heljarstökk

-
Ljósmyndasafn
Sýningin "Flickr-flakk og heljarstökk" beinir sjónum sínum að íslenskum ljósmyndurum og ljósmyndaáhugamönnum sem lifa og hrærast í ljósmyndarasamfélaginu Flickr á netinu.
Myndablogg, sem hafa notið gríðarlegra vinsælda undanfarin ár, má skilgreina sem einskonar umgjörð utan um myndir og samskipti þar sem fólk safnast saman, fylgist með þróun verka hvert annars og myndar hópa utan um sameiginleg áhugamál.