Laurent Friob│Stjörnur eitt augnablik

-
"Stjörnur eitt augnablik" er yfirskrift sýningar í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur með verkum Laurents Friob
Ljósmyndun er oft skilgreind sem vélræn eftirmynd raunveruleikans. Ljósmyndin er bútur sem er tekinn úr tíma og rúmi, pappírsbrot af óendanlegri dýpt. Myndavélin starfar líkt og stundarglas úr ljósi sem flöktir milli heima. Í ljósmyndun eru myndir baðaðar ljósi, ekki efni. Myndin frystir eitt augnablik af tímans óendanlega flæði. Það er eitthvað við myndatöku sem truflar tímans takt; spenna milli skilnings og skynjunar. Ljósmyndun er því fyrir mér svipuð og aðrir gagnslausir en þó ævarandi hlutir. Hún sýnir þörf okkar fyrir eitthvað sem glitrar innra með okkur; hvernig ljósið ljómar, slokknar, titrar og springur.
Laurent Friob