Reyk­vík­ingar – mynd­brot úr safni verka­manns

Reykvíkingar – myndbrot úr safni verkamanns
-
Sjóminjasafn

Karl Christian Nielsen fæddist í Traðarkoti við Hverfisgötu 10. júní 1895 og ólst upp í gamla Austurbænum. Til skamms tíma, um 1914-1916, starfaði hann og nam ljósmyndun á ljósmyndastofu Carls Ólafssonar við Laugaveg.

Karl Christian Nielsen var Reykjavíkurljósmyndari alþýðunnar og eitt af því sem sem einkennir myndir hans og sameinar þær flestar er grákaldur raunsæisblær augnabliksins – tifandi mannlíf hversdagsleikans.