Þórdís Erla Ágústsdóttir │Hjartaþræðir: nándin í hversdeginum

-
Ljósmyndasafn
Í ljósmyndum sínum leitast Þórdís Erla við að fanga það óáþreifanlega í daglegu lífi fólks inn á heimilum þess og á öðrum stöðum sem eru því mikilvægir.
„Ég dvel löngum stundum með því en þannig næ ég að fanga augnablik sem eru raunsönn og einlæg. Nándin við fólkið sem ég mynda gefur dýpri og merkingarbærari útkomu.“

"Ljósmyndir eru á mörkum heimilda og skáldskapar og á því spennandi svæði vinn ég mína vinnu. Þegar öllu er á botninn hvolft er markmið mitt með sýningunni að draga fram það merkingarbæra í hversdeginum. Nándina sem felst í „því venjulega“ og oft er litið fram hjá – en skiptir öllu máli.“