12 litlar mýs - Ratleikur

Verið velkomin á Landnámssýninguna Aðalstræti 9. maí kl. 10-17. Þar búa 12 litlar, litríkar mýs. Þær þvælast hingað og þangað, tvist og bast, en getur þú fundið þær allar? Ókeypis inn og öll velkomin.
Viðburðurinn er hluti af 20 vetra afmælisdagskrá Landnámssýningarinnar. Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er fremur lítil lýsing inni í sýningarsal hjá skálarústinni og þar er gólfið ójafnt á köflum. Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar stoppa við Ráðhúsið (2 mín. gangur) og í Lækjargötu (5 mín. gangur).