20 vetra afmæli Land­náms­sýn­ing­ar­innar

20 vetra afmæli Landnámssýningarinnar

Verið hjartanlega velkomin í 20 vetra afmælisveislu Landnámssýningarinnar laugardaginn þann 9. maí kl. 10:00-17:00. Ókeypis inn og öll velkomin!

DAGSKRÁ 10:00-14:00 Föndursmiðja og búningahorn 10:00-17:00 Fjölskylduratleikur 13:00-14:00 Leiðsögn með Orra Vésteinssyni, prófessor í fornleifafræði við H.Í. 13:00-16:00 Víkingar í Rimmugýg á bregða á leik 14:00-15:00 Langborð - Vorum við víkingar? - Guðrún Dröfn Whitehead, lektor í safnafræði við H.Í. - Terry Gunnell, prófessor emeritus í þjóðfræði við H.Í. - Jökull Tandri Ámundason, goði og jarl hjá víkingafélaginu Rimmugýg - Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri Borgarsögusafns Reykjavíkur 14:00-15:00 Ertu að læra íslensku? - Leiðsögn á auðskilinni íslensku 15:00-17:00 Refskák – Ertu refur eða lamb? Refskák, einnig kallað Halatafl, er fornt borðspil sem á líklegast uppruna sinn í Skandinavíu, og er afsprengi annarra taflspila sem nutu mikilli vinsælda á miðöldum. Í spilinu er einn refur og þrettán lömb (eða hænur). Refurinn ætlar að reyna að éta lömbin, en þau freistast hinsvegar til að umkringja refinn þannig að hann getur ekki hreyft sig og er því sjálfdauður. Minnst er á þetta spil í Grettis sögu. Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er lítil lýsing inni í sýningarsal hjá rústinni og þar er gólfið ójafnt. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita MR og Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).