Á hvað ertu að horfa? Teiknismiðja í haustfríinu

Á hvað eru krakkarnir á myndinni að horfa? Komdu og skoðaðu myndina á sýningu safnsins. Teiknaðu mynd af því sem þú heldur að hafi verið að gerast fyrir utan myndarammann. Láttu hugmyndaflugið ráða för í skapandi teiknismiðju. Smiðjan er opin og sveigjanleg – komið þegar ykkur hentar og takið þátt á ykkar hraða 🔎 Ljósmyndasafnið er opið mánudaga-fimmtudaga 10:00-18:00, föstudaga 11:00-18:00 og um helgar 13:00-17:00 🍂Viðburðurinn er hluti af haustfrísdagskrá Borgarsögusafns. Frítt er inn á alla sýningarstaði safnsins fyrir fullorðna í fylgd barna dagana 22.-26. október.
Aðgengi er gott á Ljósmyndasafninu og leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næstu stoppistöðvar heita Hafnarhús, Lækjartorg, Ráðhúsið (2-5 mín. gangur).