Alþjóðlegi safnadagurinn I 18. maí 2026

Þann 18. maí verður Alþjóðlegi safnadagurinn 2026 haldinn hátíðlegur undir yfirskriftinni Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi. Frítt er inn á alla sýningarstaði Borgarsögusafns Reykjavíkur í tilefni dagsins.
Um alþjóðlega safnadaginn segir á heimasíðu Íslandsdeildar ICOM: „Sem vettvangur fræðslu og þekkingar gegna söfn mikilvægu hlutverki í að efla friðsamleg samskipti og gagnkvæma virðingu. … Söfn eru opin rými sem njóta trausts almennings, þar sem gestir eiga þess kost að kynnast sögum, gripum og hvert öðru. Á tímum sundrungar, skautunar og ójafns aðgengis að þekkingu og menningu gegna söfn lykilhlutverki í að endurbyggja tengsl þvert á kynslóðir, samfélagshópa og landamæri. Þannig stuðla þau að samtali, skilningi, þátttöku og friði innan samfélaga og á heimsvísu. Yfirskriftin Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi undirstrikar möguleika safna til að brúa bilið milli ólíkra menningarheima, samfélagshópa og landssvæða. Markmið safna er ekki að setja alla undir sama hatt heldur skapa rými þar sem skilningur og virðing eru höfð í hávegum. Með því að varðveita menningararf og minni, efla fræðslu og ígrundun, auk þess að bjóða upp á opið og aðgengilegt rými þar sem ólíkar raddir fá að heyrast, stuðla söfn að fjölbreytileika og sjálfbærni.“ Til hamingju með alþjóðlega safnadaginn 2026!