Björg­un­ar­a­frekið við Látra­bjarg - Kvik­mynda­sýning á Safn­anótt

Björgunarafrekið við Látrabjarg - Kvikmyndasýning á Safnanótt

Í tilefni Safnanætur 7. febrúar, mun Sjóminjasafnið hefja sýningar á kvikmyndinni Björgunarafrekið við Látrabjarg eftir Óskar Gíslason sem kom út árið 1949. Ókeypis inn og öll velkomin.

Björgunarafrekið við Látrabjarg eftir Óskar Gíslason rekur hetjudáðir meðlima í Björgunarfélaginu Bræðrabandinu sem björguðu 12 af 15 skipbrotsmönnum af breska togaranum Dhoon sem strandað hafði við Látrabjarg þann 12. desember 1947. Afrek björgunarfólksins vakti mikla athygli innanlands sem utan. Fljótlega var ákveðið að gera þyrfti kvikmynd um afrekið og var hún unnin af Óskari Gíslasyni og björgunarmönnum sem léku björgunina fyrir myndavélarnar við hættulegar aðstæður í Látrabjargi. Sú merkilega tilviljun átti sér stað við tökurnar að annað skip strandaði í nágrenninu og þurftu björgunarmenn því að stökkva til í útkall. Óskar fylgdi þeim eftir og náði einstökum myndum af björgunarmönnum við störf sín í aftakaveðri í stórgrýttri fjörunni. Óskari Gíslasyni tókst að samtvinna sviðsettu myndirnar af björgunarmönnunum og hinni raunverulegu björgun og búa til eina áhrifaríkustu heimildamynd kvikmyndasögunnar sem kom svo út árið 1949. Kvikmyndin verður í sýningu á Sjóminjasafninu fram á vor 2025. Viðburðurinn er unninn í góðu samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands, sem varðveitir kvikmyndina. Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er gott á Sjóminjasafninu, sérstaklega við inngang Grandagarðsmegin. Lyfta er á milli hæða. Strætisvagn, leið 14, stoppar nálægt inngangi safnsins, Grandagarðsmegin.