Blóm­vendir beint úr beði - Blóm­vanda­smiðja

Blómvendir beint úr beði - Blómvandasmiðja

Sunnudaginn þann 16. ágúst kl. 13-16 eiga gestir kost á að eignast blómvönd beint úr beði. Blómdís blómahönnuður kennir gestum hönnun og samsetningu blómvanda úr sumarblómum sem hafa verið ræktuð á Árbæjarsafni í sumar.

Dillonshús café verður opið með dýrindis veitingar á boðstólum í notalegu andrúmslofti. Dagskráin stendur frá klukkan 13-16 en safnið er opið 10-17. Öll velkomin! Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.