Brúðubíllinn - Afmælisveislan á Árbæjarsafni

Verið velkomin á sýningu Brúðubílsins, Afmælisveisluna í leikstjórn Aldísar Davíðs á Árbæjarsafni mánudaginn 3. ágúst, frídag verslunarmanna kl. 14.
Lilli api, Dúskur og fleiri skrautlegar persónur munu baka drulluköku fyrir afmælisbarnið. Verkið er uppfullt af töfrum, glimmeri og fjörugum lögum. Jafnvel munu sokkapar og sápa bresta í söng! Þessi sýning er fyrir alla aldurshópa. Á safninu er leikvöllur og alls konar útileikföng fyrir káta krakka. Leikarar eru: Hörður Bent Steffensen Hugrún Ylfa Ísak Óli Borgarsson Gestum býðst til að taka myndir með brúðunum og Lilla apa eftir sýninguna. Einnig verða litabækur, litir, bolir og peysur í öllum stærðum til sölu! Ókeypis inn og öll velkomin!