Brúðubíllinn - Uglan í trénu

Verið hjartanlega velkomin á sýningu Brúðubílsins á Árbæjarsafni 29. júlí kl. 14:00. Í þetta sinn verður sýnt leikritið Uglan í trénu. Í sögunni koma fram Björninn, Mýsla týsla, Íkorninn og Jarðálfurinn. Svo mun Dúskur og Lilli að sjálfsögðu mæta og syngja Guttavísur með Gutta sjálfum og hann er alveg rosalega óþekkur.
Úlfurinn kemur í sögunni um grísina þrjá og svo er sungið um tásurnar en ekki fingurnar. Tánum finnst ekki nógu mikið sungið um þær svo þær mæta með sápukúlur og töfra! Þetta verður ómissandi sýning, full af skemmtun og gleði og eftir hana verður hægt að kaupa Lilla apa boli. Leikarar: Hörður Bent Steffensen, Alex Leó og Karítas Sif. Ókeypis inn og öll velkomin! Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið. Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.