Búningahorn litlu víkinganna á Menningarnótt

Í tilefni af Menningarnótt verður búningahorn með víkingaþema fyrir börn og fjölskyldur á Landnámssýningunni Aðalstræti 16 22. ágúst kl. 16-21. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.
Gestir Landnámssýningarinnar geta þá klætt sig í búninga og borið vopn eins og forfeður og -mæður okkar báru. Hægt verður að stilla sér upp við flottan bakgrunn og smella af mynd. Viðburðurinn er hluti af fjölbreyttri dagskrá Borgarsögusafns á Menningarnótt. Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er fremur lítil lýsing inni í sýningarsal hjá skálarústinni og þar er gólfið ójafnt á köflum. Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.