Búningahorn og föndursmiðja

Í tilefni af 20 vetra afmæli Landnámssýningarinnar verður búningahorn og föndursmiðja fyrir börn og fjölskyldur 9. maí kl. 10-14. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.
Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er fremur lítil lýsing inni í sýningarsal hjá skálarústinni og þar er gólfið ójafnt á köflum. Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.