Búum til víkinga­þorp! - Smiðja á Menn­ing­arnótt

Búum til víkingaþorp! - Smiðja á Menningarnótt

Í tilefni af Menningarnótt verður víkingaþorpssmiðja fyrir börn og fjölskyldur á Landnámssýningunni Aðalstræti 16, 22. ágúst kl. 10-15. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.

Í vík einni við litla tjörn er að rísa víkingaþorp. En margt þarf að gera, búa til hús, smiðjur, göngustíga og báta. Allir sem vilja hjálpa til geta komið að klippa, líma, lita og reisa þorpið okkar. Viðburðurinn er hluti af fjölbreyttri dagskrá Borgarsögusafns á Menningarnótt. Aðgengi er gott í Aðalstræti. Athugið þó að það er fremur lítil lýsing inni í sýningarsal hjá skálarústinni og þar er gólfið ójafnt á köflum. Leiðsöguhundar eru velkomnir í safnið.